Maí mánuður í Glerárkirkju

Komandi vikur er helgihaldið létt og fallegt, með mikilli tónlist og dýrindis kaffiveitingum. Í maí verða kaffihúsamessur í safnaðarheimili Glerárkirkju á sunnudögum, auk þess sem messa uppstigningardags verður hér þetta árið, en hún flakkar á milli Akureyrarkirkju og Glerárkirkju.

Kaffihúsamessa 10. maí kl.11:00 í Glerárkirkju
Eydís djákni þjónar við fallega helgistund á mæðradaginn. Anna Skagjförð, Helga Hrönn Óladóttir og Birgir Björnsson syngja falleg lög við undirleik Risto Laur.

Uppstigningardagur 14. maí kl.14:00 í Glerárkirkju
Hin árlega messa með Kór Eldriborgara, Í fínu formi, er á sínum stað og Kvenfélagið Baldursbrá er með kaffihlaðborð eftir messu. Hildur Björk prestur þjónar, Petra Björk Pálsdóttir leikur undir og stýrir kórnum.

Kaffihúsamessa 17. maí kl.11:00 í Glerárkirkju
Sindri prestur leiðir notalega stund þar sem tónlistin verður í höndum Ívars Helgasonar. Það verður mikið sungið og minna masað.

Kaffihúsamessa 24. maí kl.11:00 í Glerárkirkju
Hildur Björk prestur leiðir síðustu kaffihúsamessu vorsins. Mæðgurnar Margrét Árnadóttir og Erla Mist Magnúsdóttir sjá um tónlistina sem verður sumarleg og falleg.

Verið öll hjartanlega velkomin. ❤