Kyrravika og páskar

Dagskrá kyrruviku og páska er kunnuleg.
Á Pálmasunnudag hefjum við fermingarnar

Á skírdag er hér messa með borðhaldi kl.19:00, við deilum brauði og njótum fallegrar tónlistar sem Kór Glerárkirkju leiðir með Petru Björk Pálsdóttur. Hildur Björk prestur þjónar.

Á Föstudaginn langa er hér kvöldmessa kl.20:00 tileinkuð mennskunni, lífsglímunni og voninni. Sindri prestur þjónar, Margrét Árnadóttir og Kristján Edelstein sjá um tónlistina.

Á Páskadag komum við saman kl.11:00 til hátíðarstundar, Sindri prestur þjónar, Gospelkór Glerárkirkju syngur undir stjórn Helgu Hrannar Óladóttur og Risto Laur leikur undir. Kvenfélagið Baldursbrá er svo með hressingu í hádeginu.
Kl.13:00 á Páskadag er fjölskyldustund á Hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð með barna- og unglingakór kirkjunnar. Páskaeggjaleit og páskagleði!

Njótum þessara dásamlegu daga.