Komandi sunnudag um Hvítasunnu er ekki opið helgihald hér í prestakallinu. Við erum með tvær fermingarmessur og fara þær fram í Lögmannshlíðarkirkju! Vegna takmarkaðs sætafjölda eru athafnirnar aðeins opnar fjölskyldum fermingarbarnanna.
Vonin var að ná að opna hana fyrir athafnir í sumar en það tekst ekki nema núna í litlum glugga í kringum mánaðarmót maí/júní vegna ýtni prestanna að fá að ferma uppfrá- svo þurfa iðnaðarmennirnir okkar að fá að ljúka við sín störf.
Þessi tvö ár sem kirkjan hefur verið lokuð vegna framkvæmda er búið að lyfta grettistaki í viðhaldi kirkjunnar. Við erum svo lánsöm að hafa gott fólk með okkur sem hefur metnað fyrir því að hlúa að þessari dásamlegu kirkju og við hlökkum til að blása til hátíðar í lok sumars eða byrjun hausts þegar við getum tekið hana í notkun og boðið ykkur öll velkomin í Lögmannshlíðarkirkju aftur.