Facebook reglur fyrir unglinga - tillaga

Á fræðslukvöldi sem KFUM og KFUK og Glerárkirkja stóðu fyrir með stuðningi Æskulýðssjóðs um Facebooknotkun, setti fyrirlesari kvöldsins, Halldór Elías Guðmundsson fram hugmynd að Facebook notkunarreglum fyrir ósjálfráða ungmenni. Að beiðni þátttakenda eru reglurnar birtar hér. Þær eru hugsaður sem grundvöllur fyrir umræðu milli ungmenna og foreldra um Facebooknotkun, en ekki sem algildar reglur sem allir ættu að fara eftir. Þá nefndi Halldór að foreldrum væri hollt að velta því fyrir sér hvort þau gætu sjálf farið eftir álíka reglum fyrir fullorðna áður en þau færu fram á að unglingarnir færu eftir svona reglum. Góða skemmtun.

Facebook-reglur fyrir ósjálfráða unglinga

  1. Foreldrar þínir þurfa að vera vinir þínir á Facebook.
  2. Samþykktu bara vini sem þú þekkir og ert viss um hverjir eru.
  3. Þú þarft ekki að samþykkja vinabeiðnir frá neinum frekar en þú vilt. Ekki einu sinni frá ættingjum (nema auðvitað frá foreldrum).
  4. Vertu eingöngu í hópum (e. group) eða „Network“ sem þú tilheyrir í raunveruleikanum.
  5. Þú mátt ekki vera vinur kennaranna þinna, leiðbeinenda, þjálfara eða æskulýðsleiðtoga. Þú mátt hins vegar vera í hópum (e. groups) sem þau stofna í kringum verkefni/atburði/hópa sem þú tilheyrir og/eða tekur þátt í.
  6. Aðgengi að veggnum þínum þarf að vera lokað öðrum en vinum. Einkastillingar (e. privacy settings) þurfa ýmist að vera „bara vinir“ eða „bara ég“, t.d. þarf að stilla myndir þannig að þær birtist bara hjá vinum (en ekki vinum vina).
  7. Hafðu allar upplýsingar um netföng, vefsíður, síma eða annað falið á síðunni þinni. Best er að skrá sem minnst af slíkum upplýsingum á Facebook.
  8. Hafðu bara myndir af sjálfri þér sem þú getur leyft öllum í heiminum að sjá.
  9. Settu bara inn myndir af öðrum sem þú myndir vilja að væru settar inn af þér.
  10. Segðu bara á Facebook það sem allir í heiminum mega heyra.
  11. Spjallaðu (e. chat) bara við þá sem þú þekkir. Það er gott að muna að spjall og skilaboð (e. message) eru yfirleitt vistuð og auðveldlega afrituð. Það getur vel verið að þau hverfi aldrei, jafnvel þó þú stillir þau þannig.
  12. Það er ágæt regla að smella aldrei á auglýsingar á Facebook.
  13. Foreldrar þínir þurfa að vita Facebook aðgangs- og lykilorðið þitt.
  14. Foreldrar þínir þurfa að lofa að nota aldrei Facebook aðganginn þinn til að gera neitt annað en að fylgjast með notkuninni þinni. Þau verða að lofa að skrifa aldrei neitt á síðuna í þínu nafni.
  15. Með því að fara á Facebook samþykkir þú að misnotkun þín á vefnum þýðir að foreldrar þínir geta ákveðið að loka fyrir aðgang þinn.