Hvað ertu að gera á Facebook?

KFUM og KFUK ásamt Glerárkirkju bjóða upp á fræðslukvöld fyrir unglinga og foreldra um samfélagsmiðla á netinu með stuðningi Æskulýðssjóðs. Fræðslukvöldið verður haldið miðvikudagskvöldið 3. október og hefst kl. 20:00 í safnaðarsal Glerárkirkju. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Halldór Elías Guðmundsson djákni og æskulýðsfulltrúi hjá KFUM og KFUK á Íslandi.

Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig við myndum tengsl í netheimum og hvað einkennir netsamskipti. Kallað verður eftir umræðum um hvort þörf sé á net-samskiptareglum fyrir unglinga og ef svo er, hvernig reglum. Þá verður rætt stuttlega um notkun félagasamtaka, sjálfboðaliða og starfsfólks í æskulýðsstarfi á samfélagsmiðlum og hvers þeir þurfi að gæta.