Bleik messa 11. október

Komandi sunnudag, 11. október sameina Akureyrarkirkja-kirkja Matthíasar Jochumssonar og Glerárkirkja krafta sína og halda utan um bleika messu í tilefni af Bleikum október.

Prestarnir Hildur Eir og Sindri Geir þjóna og hugvekja Hildar ber yfirskriftina "Að vera gestur í eigin líkama".

Í stundinni fær tónlist Dolly Parton að umvefja okkur, en þau Anna Skagfjörð, Ívar Helgason og Arnhildur Valgarðsdóttir leiða okkur í söng og syngja fyrir okkur.

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis verður með varning til sölu til styrktar þeirra dýrmæta starfi og eftir stundina verður vöfflukaffi og gott samfélag.

Gefum okkur augnablik fyrir góðan boðskap, fallega tóna, til að tendra ljós fyrir fólkinu okkar og til að sýna samstöðu.

Verið hjartanlega velkomin til stundarinnar