Afríkumatur í boði og fundur um vinasöfnuð í Afríku

Það er Kristniboðsfélag Akureyrar sem stendur að þessari dagskrá. Á Akureyri hefur verið starfandi kristniboðsfélag síðan 1926 sem hefur stutt kristniboð, upphaflega í Kína en síðar í Eþíópíu og Kenía. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson fyrrverandi dómkirkjuprestur í Reykjavík hefur kennt við Fræðslumiðstöð kirkjunnar í Kapengúría í Kenía. Skólann í Kapengúría sækja m.a. verðandi prédikarar og prestar lútersku kirkjunnar. Sr. Jakob mun á samkomum og í guðsþjónustum segja frá kristniboðinu í Pókot héraði þar sem íslenskir kristniboðar hafa starfað síðan 1978

 

Jakob í Kenía eftir guðsþjónustuJakob í Kenía eftir guðsþjónustu

Kristniboðsfélag Akureyrar var stofnað 2007 og hefur það að markmiði að kynna kristniboðsstarf Sambands íslenskra kristniboðsfélaga og styðja það fjárhagslega.  Þeir sem vilja styðja þetta starf geta einnig lagt inn á söfnunarreikning Kristniboðsfélags Akureyrar 162 269699, kennitala 501274-0549 en framlög í hann renna til kristniboðsstarfsins almennt.

Hér fylgja með nokkrar myndir úr myndasafni Kristniboðssambandsins:

Námskeið á Fræðslumiðstöð kirkjunnar í Kapengúría

Námskeið á Fræðslumiðstöð kirkjunnar í Kapengúría 

Vatnsból að þorna upp

Vatnsból að þorna upp 

Eftir guðsþjónustu, gleði í söng

Eftir guðsþjónustu, gleði í söng

Elgon tónlistarmennirnir á góðri stund

Elgon tónlistarmennirnir á góðri stund