✨ Aðventukvöld í Glerárkirkju ✨
Sunnudaginn 29. nóvember kl. 17:00 tökum við á móti aðventunni með kertaljósum og söng.
Við kveikjum á fyrsta aðventukertinu og eigum saman notalega og hátíðlega stund þar sem tónlistin er í aðalhlutverki. Allir fjórir kórar kirkjunnar taka þátt og fylla kirkjuna okkar af söng.
☕ Kakó og smákökur í boði eftir stundina.
Verið hjartanlega velkomin! 🕯️