Fermingar 2024

KOmið þið heil og sæl

Skráning í fermingarfræðslu og fermingar í Glerárkirkju vorið 2025 hefst 3.maí.

Þá verður hægt að smella á fermingardagana hér að neðan og skráningarform birtist.
Vinsamlegast skráið börnin ekki á marga daga til að "taka frá" pláss.
Hægt er að velja það að skrá þau í fræðsluna en velja dag síðar ef ekki er búið að ákveða dag.

Fermingardagar Glerárkirkju vorið 2025:

13.apríl – pálmasunnudagur kl.11:00
3.maí – laugardagur kl.10:30 og kl.13:00*
17. maí – laugardagur kl.10:30 og kl.13:00*
25.maí – sunnudagur kl.11:00
*með þeim fyrirvara að ef báðar stundir eru fámennar verður þeim slegið saman í eina athöfn kl.11:00

Þegar þið skráið barn á dag eruð þið sjálfkrafa að skrá það í fermingarfræðsluna, svo það þarf ekki að skrá það sérstaklega í hana.


 

Haustferð/Fræðsludagar að hausti

Í vinnslu


 

Fermingarfræðslan

Í september hefst svo hefðbundin fræðsla og lykilorðin hjá okkur verða fjarfræðsla og val.
Þrjá þriðjudaga fyrir áramót og þrjá eftir áramót er gert ráð fyrir að þau mæti í fræðslu.
Tvo laugardaga á hvoru misseri verður vinnustofa (workshop) með krökkunum og þau velja hvorn laugardaginn þau mæta á, sem sagt einn á hvoru misseri.
Þá verða þrjár valfrjálsar þriðjudags fræðslustundir á hvoru misseri sem þau taka aðeins þátt í ef þau vilja og hafa áhuga á.
Auk þess fá þau myndbönd og biblíusögur heim sem þau horfa á og svara spurningum í verkefnahefti.

Næsta vor er gert ráð fyrir ferð á Hólavatn með þau úr fermingarhópnum sem vilja.

Endanlegar dagsetningar á fræðslu vetrarins munu liggja fyrir í byrjun ágúst.

Í fræðslunni vinnum við með kristna trú og lífsgildi, hvað það er sem skiptir okkur máli í lífinu, hvernig samfélag við viljum skapa og megin fræðsluefnið okkar er unnið út frá hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði. Við munum kynnast íhugun og bæn, gömlu góðu biblíusögunum og markmiðið með fermingarfræðslunni er auðvitað að gefa grundvöll til að geta tekið upplýsta ákvörðun þegar það kemur að fermingunni.


Facebook hópur fyrir foreldra og forráðamenn

Við reynum að vera í góðu tölvupóstssambandi við foreldra og forráðamenn yfir veturinn, en það hefur líka reynst vel að nýta Facebook til þess, því hvetjum við ykkur til að finna hópinn „Fermingarhópur Glerárkirkju 2025“ (tengill) og sækja um aðgang að honum.

Allar upplýsingar um fermingarfræðsluna og fermingarna verður undir hnappinum „Fermingar“ á heimasíðunni okkar, glerarkirkja.is


 Kostnaður - með fyrirvara

Fræðslugjaldið fyrir veturinn er 27.000 kr og fer sá kostnaður í ýmis útgjöld vegna utanumhalds, skipulags og í að fá inn fermingarfræðara sem starfa með prestunum við fræðsluna. Innifalin er myndataka í fermingarathöfninni og leiga/þrifagjald á fermingarkirtli sem rennur til kvenfélagsins.
Ef börn eru bara í fræðslunni en fermast annarsstaðar er fræðslugjaldið 23.000 kr.

Reikningsnúmer og kennitala er
0565-26-1092
450269-2479

Æskilegt er að greiða gjaldið í haust þegar fræðslan hefst, en hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða þá í upphafi hvorrar annar.
Ef það er erfitt að greiða gjaldið vegna einhverra ástæðna er um að gera að heyra í okkur prestunum og við leysum það.


 

Ef það eru einhverjar spurningar eða vangaveltur er hægt að senda póst á helga@glerarkirkja.is