MeM - Námskeið opið krökkum fæddum 1998 og eldri

MeM er skammstöfun sem stendur fyrir ,,Mannréttindi eru Mikilvæg." Hér er á ferðinni lifandi og skemmtilegt námskeið fyrir krakka úr áttunda, níunda og tíunda bekk sem er ekki sama um fólkið í kringum sig og heiminn allan. Námskeiðið fer fram á sunnudögum frá kl. 16:16 til 18:18 nema annað sé auglýst. Dagskráin hefst hvern dag með því að við hittumst á neðri hæð kirkjunnar. Aðalleiðbeinandi á námskeiðinu er Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju, en hann hefur kennt á námskeiðum um notkun á Kompás, handbók Evrópuráðsins í mannréttindafræðslu, víða um land upp á síðkastið. Hápunktur starfsins á haustönn verður vafalaust ferð á landsmót æskulýðsfélaga sem haldið verður á Selfossi 28. til 30. október. Aðeins krökkum sem eru með toppmætingu á námskeiðið býðst að koma með. Upplýsingar um verð og annað vegna ferðarinnar verða veittar þátttakendum þegar nær dregur. Yfirlit yfir dagskrána: 18. september: Brjálaðir leikir 25. september: Rasisti - ha hver? Ég? Nei! En þú? 02. október: Barnasáttmáli Sameinuðu Þjóðanna hvað? 09. október: Ungmennalýðræði - ungar raddir skipta máli. 16. október: Foreldrafundur - við ræðum undirbúning vegna ferðar á Selfoss 23. október: Undirbúningur f. búningaball o.fl. v. ferðar 28. til 30. október: Við tökum þátt í landsmóti æskulýðsfélaga á Selfossi 06. nóvember: Myndakvöld - skoðum myndir, njótum ávaxta 13. nóvember: Karlhetjur og kvenhetjur - hvað er málið? 20. nóvember: Vertu breytingin sem þú vilt sjá í heiminum! 27. nóvember: WWJD - Hvað myndi Jesús gera? 03. nóvember: Jóla-gisti-vöku-nótt í safnaðarheimilinu, byrjar á laugardegi! ATH: Hver samvera endar með B & B ... það er bæn og biblíuorð! Prenta út dagskrá (pdf-skjal).