Fréttir

Sunnudagur 4. nóvember. Allra heilagra messa.

Sunnudagaskóli kl. 11:00. Umsjón með sunnudagaskóla: Sunna Kristrún djákni. Messa kl. 20:00. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valamars Väljaots. Sr. Stefanía G. Steinsdóttir þjónar. Allir velkomnir.

Miðvikurdagur 31. október.

Fræðslu og umræðukvöld kl. 20:00 í Glerárkirkju Umræðuefni: Kirkjusöngur og tilbeiðsla. Ræðumaður Margrét Bóasdóttir söngmálastjóri þjóðkirkunnar. Allir velkomnir.

Sunnudagur 28. október

Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Sameignilegt upphaf í messu. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots organista. Sr. Gunnlaugur Garðarsson og sr. Stefanía G. Steinsdóttir þjóna. Allir velkomnir.

Eldri borgarar.

Samvera eldri borgara verður fimmtudaginn 18. október kl. 15:00. Gestur fundarins er Ásthildur Sturludóttir, nýráðin bæjarstjóri á Akureyri. Mætum vel, og bjórðum hana velkomna til starfa. Ath.: Sætaferðir verða frá Lindarsíðu og Lögmannshlíð.

Sunnudagur 21. október.

Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Sameiginlegt upphaf í messu. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots. Sr. Gunnlaugur Garðarsson og Sunna Kristrún djákni þjórna. Allir velkomnir.

Sunnudagur 14. október

Fjölskylduguðþjónusta kl. 11:00 Sunna Kristrún djákni þjónar. Barna- og æskulýðskórinn syngur undir stjórn Margétar Árnadóttur kórstjóra. Undirleikari er Agnes Gísladóttir.

Umræðukvöld um helgihaldi kirkjunnar verður miðvikudaginn 17. okt. kl. 20

Umræðukvöldin í Glerárkirkju verða að þessu haust þrjú á hálfs mánaðar fresti og beinast að söfnuðinum. Öllum í söfnuðunum gefst þar tækifæri til að leggja orð í belg um málefni sem brenna á kirkjunni. Kvöldin hefjast með inngangserindi, svo er boðið upp á kaffi og yfir kaffinu eru málin rædd. Kvöldin enda með helgistund í kirkjunni. Fyrsta kvöldið verður um merkingu og hlutverk messunnar: Merking og hlutverk messunnar í bænalífi og tilbeiðslu safnaðarins. Sr. Kristján Valur Ingófsson var vígslubiskup í Skálholti og hefur verið í helgisiðanefnd þjóðkirkjunnar um árabil, auk þess að starfa í ólíkum söfnuðum meðal annars Norðanlands.

Sunnudagur 7. október

Guðþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11:00. Sameiginlegt upphaf í guðþjónustu. Sr. Stefanía G. Steinsdóttir þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur. Helgistund kl. 20:00 Krossbandið leiðir söng. Sr. Stefanía G. Steinsdóttir þjórnar. Allir velkomnir.