Fréttir

Sunnudagurinn 2. nóvember.

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00 Barna- og Æskulýðskór Glerárkirkju syngur. Kvöldmessa kl. 20:30 Kór Glerárkirkju leiðir almennan söng. Allir velkomnir.

Fræðslukvöld um Jóhannesarguðspjall 29. okt. kl. 20

Sr. Gunnlaugur Garðarsson, sóknarprestur í Glerárkirkju, mun fjalla um Jóhannesarguðspjall á næsta fræðslukvöldi miðvikudaginn 29. október kl. 20. Guðspjall Jóhannesar er ólíkt hinum og verður í erindinu fjallað um það. Þá er boðskapur þess um að orðið sem varð hold rakinn til hugmynda samtímans en einnig sem einkenni kristinnar trúar.

Sunnudagurinn 26. október.

Barnastarf og messa kl. 11.00 Sameiginlegt upphaf í messu. Prestur sr. Guðmundur Guðmundsson. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmar Väljaots. Allir velkomnir.

Æskulýðsfélag Glerárkirkju og KFUM & K fer á landsmót æskulýðsfélaga

Landsmót æskulýðsfélaga Þjóðkirkjunnar verður þann 24. - 26. október á Hvammstanga og munu 22 unglingar úr UD Glerá taka þátt. Brottför verður kl. 14:00 frá Glerárkirkju. Á vefsíðu mótsins www.aeskth.is eru allar nauðsynlegar upplýsingar, einnig verður hægt að fylgjast með mótinu á facebook.com/landsmot.

Upplýsingar um fermingarferðalögin 20. - 23. október.

Makúsar- og Lúkasarguðspjall á fræðslukvöldi 22. okt.

Næsta fræðslukvöld í Glerárkirkju miðvikudaginn 22. október kl. 20 mun sr. Sigríður Munda Jónsdóttir, sóknarprestur í Ólafsfirði, halda áfram umfjöllun um guðspjöllin. Viðfangsefnið er leiðsögn um Nýja testamentið. Yfirskriftin þetta kvöld er: Markús og Lúkas - samstofna guðspjöll: Vinur hinna vinarsnauðu.

Sunnudagur 19 október

Barnasamvera og messa kl. 11. Söngur, gleði, fræðsla! Sameiginlegt upphaf. Kvöldmessa kl. 20:30 GOSPELKÓR AKUREYRAR syngur undir stjórn Heimis Ingimarssonar.

Erindi um guðspjöllin á fræðslukvöldi 15. okt.

Barnastarf og Messa sunnudaginn 12. október kl. 11.00

Barnastarf og messa verður í Glerárkirkju sunnudaginn 12. október kl. 11.00 Prestur er sr Jón Ómar Gunnarsson. Kór Glerárkirkju leiðir almennan söng. Allir velkomnir.

Fræðslukvöld: Leiðsögn um Nýja testamentið

Nú eru fræðslu- og umræðukvöldin að hefjast miðvikudaginn 8. október kl. 20 hér í Glerárkirkju. Í haust verður umfjöllin um helgirit kristninnar, Nýja testamentið. Dregnar verða fram grundvallarhugmyndir helstu rita Nýja testamentisins. Fjallað um höfunda, stund og stað ritanna, þýðingu þeirra fyrir kristna söfnðui og bænalíf. Fyrsta kvöldið fáum við nýjatestamentisfræðinginn dr. Clarence Glad til að fjalla um Nýja testamentið og vanda túlkunarinnar.