Fréttir

Sunnudagur 18 nóvember.

Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Sameiginlegt upphaf í messu. Kór Glerárkirkju leiði söng undir stjórn Valamars Väljaots organista. Sr. Gunnlaugur Garðarsson og Sunna Kristrún djákni, þjóna. Allir velkomnir.

Miðvikudagur 14. nóvember kl. 20:00.

Hvað er náttúruleg safnaðaruppbygging? Umræðukvöld í Glerárkirkju miðvikudaginn 14. nóv. kl. 20 á vegum Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis Fyrirlesari: Vigfús Ingvar Ingvarsson, fyrrum sóknarprestur á Egilsstöðum. Í fyrirlestrinum gerir hann grein fyrir safnaðaruppbyggingu, sem fór að láta til sína taka hérlendis fyrst árið 2002. Út hefur komið bókin, Náttúruleg safnaðaruppbygging: Átta grunnþættir kröftugrar kirkju, eftir Christian A. Schwarz, aðalmanninn að baki þessari uppbyggingarstarfsemi. Þetta starf teygir sig vítt og breitt um heiminn. Lykilatriði eru svokallaðar safnaðarkannanir og svo ferli í höndum heimafólks með stuðningi leiðbeinenda.

Mánudagur 12. nóvermber kl: 16:30 Bank bank... brunnur með þinni hjálp.

Kæru foreldrar og forráðamenn fermingarbarna í Glerárkirkju. Á hverju hausti ganga börn í fermingarfræðslu þjóðkirkjunnar um land allt í hús í sinni heimabyggð með bauk Hjálparstarfs kirkjunnar í hönd. Þau eru að safna fyrir vatnsverkefnum Hjálparstarfsins í Afríku, nánar tiltekið í Eþíópíu og Úganda. Mörg undanfarin ár hafa krakkarnir á Íslandi safnað um átta milljónum króna í hvert skipti. Með þátttöku sinni í söfnunarátakinu leggja þau því svo sannarlega sitt af mörkum til hjálparstarfs. Í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar, sem okkar kirkja stendur að höfum við skipulagt söfnun í sókninni okkar. Við ætlum að hittast í safnaðarheimili Glerárkirkju mánudaginn 12. Nóvember kl. 16:30, foreldrar og forráðamenn eru einnig velkomnir. Þetta verkefni var fyrst unnið fyrir 20 árum síðan og hefur gengið mjög vel. Fermingarbörn í yfir 60 sóknum um allt land hafa tekið þátt. Í fyrra gekk sérstaklega vel hjá fermingarbörnum í okkar sókn. Við vonum að þið takið vel undir þetta með okkur, ræðið við börnin og hvetjið þau til að sameinast í þetta átak. Allt starf Hjálparstarfsins snýst um að fólk fái tækifæri. Takk fyrir að vera með okkur í því! Kveðja Gunnlaugur og Stefanía.

Sunnudagur 11. nóvember.

Fjölskylduguðþjónusta kl. 11:00 Sunna Kristrún djákn, Margrét Árnadóttir og Agnes Gísaldóttir leiða stundina. Barnakór Glerárkirkju syngur. Allir hjartanlega velkomnir.