Fréttir

Jólatónleikar Kórs Glerárkirkju og Karlakórs Eyjafjarðar verða 21.desember kl. 16.00

Jólatónleikar Kórs Glerárkirkju og Karlakórs Eyjafjarðar verða þann 21. desmeber kl. 16. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Sunnudagur 14. desember. þriðji sunnudagur í aðventu.

Fjölskylduguðsþjónusta kl: 11.00 sr. Gunnlaugur Garðarsson og Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir, djákni þjóna. Barna- og æskulýðskór Glerárkirkju syngur. Allir velkomnir. Guðþjónusta á Hlíð kl. 14:00 sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar og Valmar Väljaots leiðir söng.

Sunnudagurinn 7. desember, annar sunnudagur í aðventu

Sunnudagskóli og messa kl. 11:00. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og predikar. Kór Glerárkirkju leiðir almennan söng undir stjórn Valmars Väljaots. Kvöldguðsþjónusta kl: 20:30 Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar. Krossbandið leiðir almennan söng.

Jólatónleikar Kórs Glerárkirkju

Þann 14. desember kl. 20.00 verða hinir árlegu jólatónleikar Kórs Glerárkirkju. Í þetta skipti eru þeir í samvinnu við Karlakór Eyjafjarðar. Stjórnendur eru þau Valmar Väljaots og Petra Björk Pálsdóttir. Að venju er frítt inn og allir hjartanlega velkomnir.

Vinaheimsóknir kirkjunnar í Eyjafjarðar -og Þingeyjarprófastsdæmi

Á vegum Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis hefur undanfarin ár verið boðið upp á vinaheimsóknir til aldraðra einstaklinga, þetta starf lætur ekki mikið yfir sér, en hefur smátt og smátt eflst og aukist. Þeir sem vilja vita meira um þessa starfsemi geta haft samband við sr. Sunnu Dóru Möller sem hefur nú tekið við umsjón þessara heimsókna af Ástu Garðarsdóttur. Hægt er að hafa samband í síma 6942805 eða á netfanginu sunnadora@akirkja.is.

Fjölbreytt dagskrá um hátíðarnar í Glerárkirkju

Það verður fjölbreytt helgihald í Glerárkirkju á aðventu og jólum í ár. Prestar, starfsfólk og kór kirkjunnar hafa undirbúið marga spennandi viðburði um hátíðarnar og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Utan hins hefðbundna helgihalds heldur Kór Glerárkirkju sína árlegu jólatónleika kl. 20 þann 14, desember n.k. og Gospelkór Akureyrar syngur í kvöldmessu 28. desember. Hér að neðan gefur að líta yfirlit viðburða í Glerárkirkju um hátíðarnar.

Sunnudagur 30. nóvember. Fyrsti sunnudagur í aðventu

Sunnudagsskóli og messa kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir almennan söng undir stjórn Valamar Väljaots. Aðventukvöld kl. 20:30 Ræðumaður er Sigrún Stefánsdóttir. Kór Glerárkirkju syngur ásamt Barna- og Æskulýðskór kirkjunnar. Fermingarbörn taka þátt í ljósaathöfn. Allir hjartanlega velkomnir.

Sr. Jón Ómar Gunnarsson fjallar um bréf Jóhannesar og Opinberunarbókina

Síðasta fræðslukvöldið í Glerárkirkju þetta misserið verður miðvikudaginn 26. nóvember kl. 20-22. Sr. Jón Ómar Gunnarsson, prestur í Glerárkirkju, mun fjalla um bréf Jóhannesar postula og Opinberunarbókina. Erindið nefnir hann: Trúarreynslan og sýn til efsta dags. Í erindi sínu mun Jón Ómar fjalla um áherslur Jóhannesarbréfanna um eðli Guðs og eftirfylgdina við Jesú Krist. Jón Ómar mun einnig fjalla um Opinberunarbókina og gildi hennar fyrir kristið fólk í dag.

Jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu að hefjast 27. nóvember

Eins og undanfarið ár verður samstarf um jólaaðstoð milli Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Rauða krossins við Eyjafjörð. Þannig er sótt um að hringt er í síma 570 4090 milli kl. 10:00 og 12:00 alla virka daga frá 27. nóvember til 5. desember. Bókað er viðtal þar sem fyllt er út umsókn og koma þarf með staðgreiðsluyfirlit frá skattinum. Um er að ræða kort sem nota má í verslunum til matarkaupa fyrir þá sem eiga lítið handa á milli.

Sunnudagurinn 23. nóvember

Sunnudagaskóli og messa kl. 11. Sameiginlegt upphaf í messu. Prestur sr. Jón Ómar Gunnarsson. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmar Väljaots. Allir velkomnir.