Sumarmessur á Akureyri

Í sumar verður samstarf milli Akureyrar og Glerárkirkju með helgihaldið í kirkjunum.
Það verða morgunmessur í Akureyrarkirkju og kvöldstundir hér norðan við á, ýmist í Lögmannshlíðarkirkju eða Glerárkirkju.
Verið velkomin til kirkju í sumar.

 

Sunnudagurinn 26. júní
Kl.11:00 Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju.
Séra Stefanía Steinsdóttir þjónar, organisti er Valmar Väljaots.

Kl. 20:00 Krossbandsmessa í Lögmannshlíðarkirkju.
Séra Stefanía Steinsdóttir þjónar og Krossbandið sér um tónlistina.

Sunnudagurinn 3. júlí
Kl.11:00 Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju.
Séra Magnús G. Gunnarsson þjónar, organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.Gunnar Gunnarsson, Heiða Árnadóttir, Íva Þórarinsdóttir og Sjur Magnus flytja tónlist í messunni.

Kl. 20:00 Kvöldmessa í Lögmannshlíðarkirkju.
Séra Magnús G. Gunnarsson þjónar, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir organisti og Margrét Árnadóttir söngkona sjá um tónlistina.

Sunnudagurinn 10. júlí
Kl.11:00 Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju.
Séra Stefanía Steinsdóttir þjónar, organisti er Eyþór Ingi Jónsson.

Kl. 20:00 Kaffihúsamessa í Glerárkirkju
Séra Stefanía Steinsdóttir þjónar og Krossbandið sér um tónlistina.
Ljúf stemning og kaffiveitingar á boðstólum. Messan fer fram í safnaðarheimili kirkjunnar.

Sunnudagurinn 17. júlí
Kl.11:00 Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju.
Séra Guðmundur Guðmundsson þjónar, organisti er Petra Björk Pálsdóttir.
Helena Guðlaug Bjarnadóttir syngur.

Kl. 20:00 Kaffihúsamessa í Glerárkirkju
Séra Guðmundur Guðmundsson þjónar. Valmar Väljaots og Ívar Helgason sjá um tónlistina.
Messan fer fram í safnaðarheimili kirkjunnar og kaffiveitingar verða í boði.Þema stundarinnar er
Trú og ást, myndlist og ljóð.

Sunnudagurinn 24. júlí
Kl. 9:30 Morgunbæn í Lögmannshlíðarkirkju
Séra Svavar Alfreð Jónsson leiðir bænastund í Lögmannshlíðarkirkju áður en gengið er til messu í Akureyrarkirkju.
Gangan er tæpir 4km.

Kl.11:00 Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju.
Séra Svavar Alfreð Jónsson þjónar, organisti er Valmar Väljaots.