11. október 2011 - Pétur Björgvin Þorsteinsson - Lestrar 57
Prestar kirkjunnar hafa nú sent öllum foreldrum fermingarbarna bréf heim í pósti með upplýsingum vegna ferðalags á Löngumýri. Ef
bréfið hefur af einhverjum orsökum ekki borist þá er það einnig aðgengilegt hér fyrir neðan.
Akureyri, 9. október 2011
Til foreldra fermingarbarna
Eins og undanfarin ár fara fermingarbörnin í Glerárkirkju í ferðalag, sér til gagns og gamans. Farið verður frá Glerárkirkju sem hér segir:
Auk okkar prestanna í Glerárkirkju, annast samveruna að Löngumýri, Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni.
Að lokum viljum við undirstrika mikilvægi þess að foreldrar ræki vel guðsþjónustur safnaðarins með börnum sínum í vetur. Þátttaka í guðsþjónustum er einn mikilvægasti liðurinn í fermingarundirbúningnum og hefur það ómetanlegt fordæmisgildi að foreldrar leggi því lið og komi ásamt börnum sínum. Einum klukkutíma í viku er vel varið með barni sínu í lofgjörð og bæn. Slíkt vekur og styrkir allt hið góða sem í hverri fjölskyldu býr.
Ath. Foreldrar þeirra fermingarbarna sem að einhverjum ástæðum þiggja ekki þetta boð eru vinsamlega beðnir að láta vita.
Virðingarfyllst
Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, 464 8802 / 864 8456
Sr. Gunnlaugur Garðarsson, 464 8808 / 864 8455
ATH: Farangurs- og slysatryggingar eru á ábyrgð forráðamanna.

- Börn úr Glerárskóla, þriðjudaginn 18. október. Brottför kl. 08:30.
- Börn úr Síðuskóla, fimmtudaginn 20. október. Brottför kl. 08:30.
- Börn úr Giljaskóla, föstudaginn 21. október. Brottför kl. 08:30.