Ákvæði um þjóðkirkju verði áfram í stjórnarskrá

Aukakirkjuþing kom saman í dag. Til þess var  boðað til að ræða ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um endurskoðun stjórnarskrárinnar að því er varðar ákvæði hennar um þjóðkirkjuna. Kirkjuþing samþykkti eftirfarandi ályktun samhljóða:

Þjóðin mun ganga til atkvæðagreiðslu þann 20. okt. næstkomandi um eftirfarandi spurningu. „Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá Íslands verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi“.

Aukakirkjuþing, haldið 1. september 2012, hvetur kjósendur til að minnast þess að hin evangelíska lúterska þjóðkirkja er samofin menningu og sögu íslensku þjóðarinnar sem og annarra norrænna þjóða. Þjóðkirkjan er opin, lýðræðisleg almannahreyfing sem heldur uppi þjónustu og mannræktarstarfi um land allt. Hún er því mikilvæg grunnstoð íslensks samfélags. Því hvetur þingið til þess að áfram verði ákvæði um þjóðkirkju í stjórnarskrá og að staða réttindi annarra trú-og lífsskoðunarfélaga verði tryggð.

Sjá einnig á kirkjan.is.