    <language>is</language>
RSS - Myndasafn - Together in Snow and Sun - boring or fun?
15.jpg
Beitt var fjölbreyttum aðferðum til þess að tjáning um hið jákvæða og neikvæða yrði sem augljósust. Hér eru sjálfboðaliðarnir í hlutverkum fimm sjónarmiða; Einn tjáir bjartsýnina, annar rökfestuna, þriðji efasemdirnar, fjórði framtíðarsýnina og fimmti ]]></description>
29.jpg
28.jpg
Á alþjóðakvöldinu gætti margskyns krása á borðum, en íslenskur þorramatur var þar í öndvegi.]]></description>
27.jpg
26.jpg
Hvað þarf að vera til staðar fyrir sjálfboðaliðann? Spurt um tengslanet og ferli ...]]></description>
25.jpg
Eitt af verkefnunum sem fundurinn tókst á við var að SVÓT greina Glerárkirkju sem aðila á bak við ungmennastarfa og þá sem móttökusamtök fyrir erlenda sjálfboðaliða sér í lagi.]]></description>
24.jpg
Stór hluti matsfundarins var haldinn á Vestmannsvatni.]]></description>
23.jpg
22.jpg
Að loknu erindi Þórgnýs Dýrfjörðs fengu viðstaddir tækifæri til þess að skoða Hof í hólf og gólf.]]></description>
21.jpg
Þórgnýr Dýrfjörð tók á móti hópnum í Hofi, kynnti starfsemi Akureyrarstofu og þá þróun sem hefði átt sér stað í ferðamanna- og menningarmálum á Akureyri hin síðustu ár. Kynning hans kom af stað frjórri umræðu um hvernig sjálfboðaliðar almennt gætu komið að menningarstarfi á Akureyri. Þá hvöttu sjálfboðaliðarnir fyrrverandi forsvarsfólk æskulýðsstarfs Glerárkirkju til að skoða frekara samstarf við Akureyrarbæ um slík verkefni.]]></description>
20.jpg
Þær Sigríður Stefánsdóttir, Zane Brykovska og Dagný M. Harðardóttir tóku á móti hópnum í Ráðhúsi Akureyrar og fræddu hópinn um stöðu mála á Akureyri í fræðslu og stuðningi við almenning og þá sér í lagi þau sem flytja til bæjarins erlendis frá. Í máli sjálfboðaliðanna kom fram að það hefði verið mikilsvert fyrir sjálfboðaliðana að fá sundkort og skíðapassa frá bænum. Að sama skapi væri mjög miður að sá stuðningur hefði verið lagður niður 2009. Fyrir hönd sjálfboðaliða framtíðarinnar sögðust fyrrverandi sjálfboðaliðarnir vonast til þess að Akureyrarbær sæi sér aftur fært að veita þennan stuðning.]]></description>
19.jpg
Heimsókn í Rósenborg mánudaginn 20. febrúar var mjög upplýsandi fyrir okkur í Glerárkirkju sem og fyrir sjálfboðaliðana. Fram kom í máli sjálfboðaliðanna að þeim hafði ekki öllum verið nægilega vel kunnugt um þá starfsemi sem fram fer í Rósenborg og því beint til ábyrgðaraðila í Glerárkirkju að tryggja að sjálfboðaliðar Glerárkirkju í framtíðinni fái kynningu á starfi ungmennahússins og að þeim sé gefið tækifæri til frekari tengslamyndunar við það unga fólk sem þar starfar.]]></description>
18.jpg
Mánudagsmorguninn 20. febrúar áttu fundarmenn góðan fund með Gunnar Gíslasyni deildarstjóra Skóladeildar Akureyrarbæjar. Þar gafst sjálfboðaliðunum kostur á að tjá sig um verkefnið og ræddar voru hugmyndir og óskir um frekari aðkomu Skóladeildar að verkefninu.]]></description>
17.jpg
Matsfundir voru haldnir á öllum leikskólunum þremur (Sunnuból, Síðusel og Krógaból) sem að verkefninu hafa komið. Á fundunum var almennt lýst yfir mikilli ánægju með verkefnið og að allir leikskólarnir hefðu fullan áhuga á því að halda verkefninu áfram. Í máli sjálfboðaliðanna kom fram almenn ánægja með starfið á leikskólunum og þótti langflestum það vera mikilvægur hluti af sjálfboðaliðaverkefninu ,,Together in Snow and Sun".]]></description>
16.jpg
Hlut af dagskrá matsfundarins voru heimsóknir á leikskólana þar sem að sjálfboðaliðarnir höfðu starfað, en Glerárkirkja hefur átt í mjög góðu samstarfi við þrjá leikskóla í næsta nágrenni kirkjunnar: Sunnuból, Síðusel og Krógaból þar sem þessi mynd er tekin. Á mánudagsmorgninum, 20. febrúar, gafst sjálfboðaliðunum tækifæri til að heimsækja gömlu leikskólana sína og rifja upp gömul kynni. Fyrr en varði voru sum þeirra komin á fullt að hjálpa til, enda morgunverður í gangi og nóg að gera.]]></description>