
Eitt af hlutverkum hins kristna safnaðar er að sinna kærleiksþjónustu. Markmið kærleiksþjónustunnar eru að rjúfa einangrun, skapa samfélag, fræða um kristna trú og kristin viðhorf, lina þjáningar og glæða von.
Drifkraft og undirstöðu kærleiksþjónustunnar er að sækja í boðun Jesú Krists og afstöðu hans til allra manna, kvenna, karla, barna og unglinga. Hann sagði dæmisögu um miskunnsama Samverjann og sú saga lýsir okkur langt á braut kærleiksþjónustunnar (Lúk. 10.25-37). Sjálfur leit Kristur á sig sem þjón (Matt 20.28) og hann gekk á undan með góðu fordæmi og þjónaði meðal annars þegar hann þvoði fætur lærisveina sinna (Jóh. 13.4-17). Í Matt. 25.40 segir Jesús: ,,Allt sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér.” Það sem viðkomandi höfðu gert var að gefa hungruðum að borða, þyrstum að drekka, hýst gesti, klætt nakta, vitjað sjúkra og heimsótt fanga. Í raun er hér komin útskýring á kristinni kærleiksþjónustu í hnotskurn.
Allt starfsfólk og sjálfboðaliðar Glerárkirkju koma að kærleiksþjónustu kirkjunnar á einn eða annan hátt en með ráðningu djákna frá 1. janúar 2005 hefur áherslan á þennan starfsþátt kirkjunnar verið aukinn enn frekar.
Umfram það er Glerárkirkja aðili að tvenns konar kærleiksþjónustu sem fram fer á skipulagðan hátt á vegum Eyjafjarðarprófastsdæmis:
-
Á FSA starfa djákni / prestur og sinna þar andlegri og trúarlegri þjónustu við sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk stofnunarinnar. Í starfi sínu hefur djákni samstarf við aðra djákna og presta í prófastsdæminu sem og forstöðumenn annarra safnaða. Starf djákna á FSA felst m.a. í stuðningsviðtölum, fræðslu, sálgæslu og helgihaldi. Þeim sem vilja ná á djákna á FSA er bent á að starfsfólk á deildum hefur milligöngu um það.
-
VINAHEIMSÓKNIR eru skipulagðar af Starfmanni Prófastsdæmisinns sjá Eyjafjarðarprófastsdæmi - Prófastsdæmið. Með vinaheimsóknum er verið að reyna að rjúfa einangrun fólks og koma til móts við einstaklinga sem hafa lítil tök á að fara út á meðal fólks, en vilja gjarnan fá heimsókn úr nágrenninu. Sjálfboðaliðarnir sem að þessu starfa taka gjarnan að sér einn einstakling og það verður samkomulagsatriði þeirra á milli hve oft er komið og hvað er gert, hvort farið er út að ganga, lesið eða bara rabbað saman.
Á trúmálavef þjóðkirkjunnar má lesa ýmsa pistla um kærleiksþjónustu, sjá: http://tru.is/stikkord/k%C3%A6rleiks%C3%BEj%C3%B3nusta