fimmtudagur 26.janúar 2012 - Pétur Björgvin Þorsteinsson - Lestrar 15
Kirkjuklúbburinn er tómstundastarf fyrir börn úr fyrsta til fjórða bekk. Hópurinn hittist alla fimmtudaga í safnaðarsal Glerárkirkju. Stundin byrjar klukkan hálf fjögur og henni líkur klukkan hálf fimm. Þátttaka er ókeypis.
Boðið er upp á fjölbreytta iðju, leiki, söng og margt annað sem eflir vináttu og styrkir einstaklinginn. Að sjálfsögðu er stutt helgistund á sínum stað.
Það eru Andri, Magnús, Ragnheiður, Stefanía Tara og Anna Dúa sem sjá um Kirkjuklúbbinn. Gjarnan má hringja í Önnu Dúu í síma 662-4590 til að fá nánari upplýsingar.
Auglýsing í lit á pdf-formi.
Heimildir