• Sr. Gunnlaugur Garðarsson sóknarprestur, 864 8455.
• Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, prestur, 864 8456.
Á sama tíma og tekist er á við sorgina kalla ýmis úrlausnarefni á athygli í sambandi við jarðarför. Starfsfólk útfararstofanna er mjög hjálplegt við að aðstoða. Á Akureyri er starfrækt Útfaraþjónusta Kirkjugarða Akureyrar. Skrifstofan er opin kl. 8-17 virka daga, tímapantanir í síma 461-4060.
Í Lögmannshlíðarsókn er einn kirkjugarður og stendur hann við Lögmannshlíðarkirkju, en hann tilheyrir Kirkjugörðum Akureyrar rétt eins og garðurinn á Naustahöfða. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk Kirkjugarða Akureyrar.
Útför er sérstök tegund guðsþjónustu, þar sem látinn er kvaddur með bæn og þakkargjörð og falinn vernd Guðs í trú á sigur hins upprisna Drottins og frelsara. Bænin og orðið skipa öndvegið í útförinni og í þá þjónustu sækja aðstandendur sér styrk og huggun. Form á útför getur verið breytilegt en oftast fer útför fram með eftirfarandi hætti:
Forspil / upphafslag - Bæn - Sálmur - Ritningarlestur - Sálmur - Guðspjall - Sálmur / söngur / tónlist - Ræða - Sálmur / söngur / tónlist - Bæn og Faðir vor - Sálmur - Moldun - Sálmur - Blessun - Eftirspil/útgöngulag
Þetta form eða þessu líkt er algengasta formið á útför. Stundum eru fengnir einsöngvarar eða einleikarar til að flytja tónlist. Ástvinir sitja venjulega fremst til vinstri í kirkjunni en líkmenn, þ.e. þeir sem bera kistuna fremst hægra megin. Líkmenn eru annaðhvort 6 eða 8. Við undirbúning á útfararathöfn eru prestur og organisti aðstandendum til aðstoðar á frekari útfærslu athafnarinnar. Útfararstofur sjá um allan ytri umbúnað athafnarinnar og aðstoða aðstandendur eins og kostur er. Frá kirkju er kistan flutt með viðhafnarbíl að kirkjugarði. Nánustu aðstandendur taka þátt í líkfylgdinni í garðinn. Óski aðstandendur þess getur útfararstjóri stýrt athöfn í kirkju.
Hér eru nokkrir minnispunktar til leiðbeiningar:
• Æskilegt er að hafa samband við prest sem fyrst, hvort heldur er, áður en haft er samband við útfarastofu eða í beinu framhaldi þar af.
• Útfaradagur, tímasetning og kirkja er ákveðin í samráði við prest og útfarastofu.
• Ef óskað er eftir að erfidrykkja fari fram í safnaðarsal að athöfn lokinni þarf að taka það sérstaklega fram. Með góðum fyrirvara þurfa aðstandendur svo að vera í beinu sambandi við veitingastjóra: Sigurrós Anna Gísladóttir, 848-6440.
Sjá einnig minnismiða á vef Útfarastofu KGA.