Ást fyrir lífið er samskiptanámskeið fyrir fólk á öllum aldri undir leiðsögn Péturs Björgvins Þorsteinssonar, djákna
í Glerárkirkju.
Viltu leggja vinnu í samskipti þín við þína nánustu?
Sífellt fleiri einstaklingar velja að leggja vinnu í samband sitt við maka og aðra meðlimi fjölskyldunnar. Hér er á ferðinni námskeið sem getur nýst hverjum þeim sem vill halda áfram slíkri vinnu. Stuðst er við bókina ,,Ást fyrir lífið" og bent á hvernig nota megi þá bók sem sjálfshjálpartæki í þeirri vinnu og því sjálfsnámi sem felst í því að bæta eigin samskipti. Bókinni hefur verið tekið vel erlendis, meðal annars í Bandaríkjunum og Þýskalandi.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er þýðandi bókarinnar, Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju. Bent er á viðtal við Pétur á N4, en nálgast má það á vefslóðinni: http://www.n4.is/tube/file/view/1383
Gott er að vita að námskeiðið er í fyrirlestraformi og eru þátttakandur hvorki beðnir að tjá sig um ástæðu þess að þeir sækja námskeiðið né um hvernig þeirra samskipti ganga fyrir sig.
Skráning fer fram á netfangið petur[hjá]glerarkirkja.is og veitir hann nánari upplýsingar 864 8451.
Næstu námskeið verða sem hér segir:
Næstu kynningar á bókinni verða sem hér segir:
Viltu leggja vinnu í samskipti þín við þína nánustu?Sífellt fleiri einstaklingar velja að leggja vinnu í samband sitt við maka og aðra meðlimi fjölskyldunnar. Hér er á ferðinni námskeið sem getur nýst hverjum þeim sem vill halda áfram slíkri vinnu. Stuðst er við bókina ,,Ást fyrir lífið" og bent á hvernig nota megi þá bók sem sjálfshjálpartæki í þeirri vinnu og því sjálfsnámi sem felst í því að bæta eigin samskipti. Bókinni hefur verið tekið vel erlendis, meðal annars í Bandaríkjunum og Þýskalandi.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er þýðandi bókarinnar, Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju. Bent er á viðtal við Pétur á N4, en nálgast má það á vefslóðinni: http://www.n4.is/tube/file/view/1383
Gott er að vita að námskeiðið er í fyrirlestraformi og eru þátttakandur hvorki beðnir að tjá sig um ástæðu þess að þeir sækja námskeiðið né um hvernig þeirra samskipti ganga fyrir sig.
Skráning fer fram á netfangið petur[hjá]glerarkirkja.is og veitir hann nánari upplýsingar 864 8451.
Næstu námskeið verða sem hér segir:
- Næsta námskeið verður í Glerárkirkju miðvikudagskvöldin 11. og 18. janúar 2012.
- Engin kynning skipulögð í augnablikinu, en bent er á að á Útvarp Lindin er lesinn einn kafli á viku. Fyrsti lestur í hverri viku er á
sunnudagskvöldum kl. 20:00.
- Opinber vefsíða bókarinnar á ensku
- Viðtal við Pétur Björgvin um bókina
- Tengdur vefur - Fireproof marriage!