Margmiðlun

Hér fyrir neðan er að finna tengla á ýmislegt fræðsluefni og upptökur frá fræðslu- og umræðukvöldum sem kirkjan hefur staðið fyrir. 2011 -

Margmiðlun

Hér fyrir neðan er að finna tengla á ýmislegt fræðsluefni og upptökur frá fræðslu- og umræðukvöldum sem kirkjan hefur staðið fyrir.

2011 - haust

Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi í samstarfi við Glerárkirkju stendur fyrir samræðukvöldum á miðvikudögum kl. 20:00 í október og nóvember eins og undanfarin misseri. Tilgangurinn með þeim er að skapa vettvang til samtals um kirkju og kristni og eru allir sem áhuga hafa velkomnir til að taka þátt í samtalinu. Hér á síðunni eru birtar upptökur frá kvöldunum jafnóðum. Sjá nánar á vef prófastsdæmisins.

Fyrsta samræðukvöldið um trúna á Krist, guðspjöllin og nútímann var miðvikudagskvöldið 5. október 2011. Hér á vefnum má nú horfa úrklippur úr tveggja manna tali þeirra sr. Jóns Ármanns Gíslasonar, prófastur, og Jóns Vals Jenssonar, kaþólskur guðfræðingur, um efni kvöldsins: Sagan og raunveruleikinn.
Sjá einnig umfjöllun á vef prófastsdæmisins.
 
 Annað samræðukvöldið átti sér stað 12. október 2011. Þar flutti framsögu dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Á vefnum má horfa á fyrri og seinni hluta erindis hans, en einnig stuttan bút úr umræðum kvöldsins hér til hliðar.
Sjá einnig umfjöllun á vef prófastsdæmisins.
 
   
   
   
   
   
   




   
  Í tilefni af sýning í Glerárkirkju á eftirprentunum af biblíumyndum sem notaðar voru við kennslu í skólum bæjarins hér áður fyrr var boðið upp á fræðslukvöld í kirkjunni. Höfundur flestra þeirra er Elsie Anna Wood (1887 - 1978). Hér að ofan má horfa á fræðsluerindið sem Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju flutti.

Hér á netinu er einnig hægt að:

Skoða glærur kvöldsins og lesa erindi kvöldsins.



Umræðukvöld prófastsdæmisins í samstarfi við Glerárkirkju á vordögum 2011 snérust um þjóðgildin og hófust þau mánudagskvöldið 7. febrúar í Glerárkirkju með framsögu Gunnars Hersveins, höfundar bókarinnar ÞJÓÐGILDIN. 35 manns sóttu fundinn og sköpuðust lifandi umræður um þau gildi og það samfélag sem við viljum búa við. Með þessu framtaki vill prófastsdæmið efla samtalið milli fólks um nútíð og framtíð okkar allra. Að lokinni helgistund gengu þátttakendur í safnaðarsalinn þar sem Gunnar flutti erindi sitt. Hann hóf mál sitt með því að benda á að gildi er víðtækt siðferðilegt hugtak sem fjallar um þau verðmæti sem bæta einstaklinga og samfélag. Þá benti hann á að dyggðir eru lærðir mannkostir, siðferðilegur eiginleiki fólks sem það hefur áunnið sér og æft sig í. Þannig væru dyggðirnar sammannlegir þættir sem gera gott fólk úr börnum, þ.e. eiginleikar sem vert er að hrósa fyrir. Sjá nánar á vef prófastsdæmisins. Að loknu þessu upphafskvöldi tóku við sjö umræðukvöld:

Annað umræðukvöldið fjallaði um þjóðgildin: Ábyrgð og frelsi.

Sr. Svavar A. Jónsson, sóknarprestur í Akureyrarkirkju, var með hugvekju og bæn í upphafi sem lesa má á trú.is. Erindi kvöldsins annaðist Baldur Dýrfjörð, lögfræðingur og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Samantekt eftir kvöldið má lesa hér og horfa á erindiBaldurs á You-tube.
 
Þriðja umræðukvöldið fjallaði um þjóðgildin: Heiðarleiki og traust

Inngangsorð flutti Fjalar Freyr Einarsson kennari, en framsöguerindi kvöldsins flutti Hlín Bolladóttir, kennari og bæjarfulltrúi (Listi fólksins). Ávef prófastsdæmisins má lesa stutta samantekt frá kvöldinu, en einnig máhorfa á erindi Hlínar á Youtube og punkta úr inngangsorðum Fjalars má nálgast á vef Glerárkirkju.
 
Fjórða umræðukvöldið fjallaði um þjóðgildin: Virðing og réttlæti.

Katrín Ásgrímsdóttir, sem situr í kirkjuráði þjóðkirkjunnar var með hugvekju. Hugvekju hennar má lesa átrú.is. Þá flutti Hermann Jón Tómassona erindi sem hann nefndi: “Þjóðgildin virðing og réttlæti. Erindi hans er í heild á You-tube. Á vef prófastsdæmisins má lesa samantekt á innleggi þeirra og nokkur atriði úr umræðunum.
 
Fimmta umræðukvöldið fjallaði um þjóðgildin: Lýðræði og jöfnuður.

Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir prestur í Glerárkirkju flutti inngangsorð og stjórnaði helgistund. Inngangsorð hennar má lesa á trú.is. Þá flutti Guðmundur Baldvin Guðmundsson bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins framsöguerindi kvöldsins. Erindi hans er í heild á youtube. Á vef prófastsdæmisins má lesa samantekt frá kvöldinu.
 
 Sjötta umræðukvöldið fjallaði um þjóðgildin: Jafnrétti og sjálfbærni.

Sr. Guðmundur Guðmundsson héraðsprestur flutti inngangsorð og sr. Gunnlaugur Garðarsson stjórnaði helgistund. Þá flutti Andrea Hjálmsdóttir bæjarfulltrúi Vinstri-Grænna framsöguerindi kvöldsins. Horfa má á erindi hennar í heild sinni á youtube. Þá má finna samantekt frá kvöldinu á vef prófastsdæmisins.
 
Sjöunda kvöldið fjallaði um hófsemd og samfélag, en Gunnar Hersveinn bætir þessum tveimur hugtökum við þjóðgildaumræðuna í bók sinni.

Sr. Dalla Þórðardóttir flutti inngangsorð og Sigurður Guðmundsson frá Bæjarlistanum flutti framsöguerindi kvöldins.

Hægt er að lesa erindi sr. Döllu á trú.is og horfa á erindi Sigurðar á youtube. Þá má finnasamantekt frá kvöldinu á vef prófastsdæmisins.
 
 Á áttunda kvöldinu var horft yfir farinn veg og áherslan lögð á samtalið milli allra frummælenda frá kvöldunum sjö.

Sr. Gunnlaugur Garðarsson flutti inngangsorð og sá um helgistund í kirkjunni. Að henni lokinni var boðið upp á kaffiveitingar í safnaðarsal.

Til þess að ýta samtalinu úr vör lásu sr. Guðmundur Guðmundsson og Pétur Björgvin Þorsteinsson, umsjónarmenn kvöldanna, upp texta sem þeir höfðu tekið saman úr því efni sem til hafði orðið á kvöldunum sjö. Hlýða má á þá samantekt með því að smella á myndina hér til hægri.
 
   


2010

Eyjafjarðarprófastsdæmi í samstarfi við Glerárkirkju stóð fyrir umræðukvöldum haustið 2010 undir yfirskriftinni ,,Fylgjum kindagötunni fyrst hún er þarna" þar sem fjallað var um nokkur af stefnumálum kirkjunnar:

Sr. Þorgrímur Daníelsson á umræðukvöldi í Glerárkirkju: Kirkja, kristni og hugmyndalandslag á Íslandi
 
 Sr. Halldór Reynisson á umræðukvöldi í Glerárkirkju: Dugar fræðsla og boðun kirkjunnar?  
 Sr. Kristján Valur Ingólfsson á umræðukvöldi í Glerárkirkju: Handbók og helgisiðir  
 Sigríður Dögg Geirsdóttir á umræðukvöldi í Glerárkirkju: Fjármál kirkjunnar  
 Magnea Sverrisdóttir djákni á umræðukvöldi í Glerárkirkju: Kynning á Lútherska heimssambandinu  
 Sr. Jón A. Baldvinsson á umræðukvöldi í Glerárkirkju: Hvert stefnum við?   

 

Svæði

Glerárkirkja | Bugðusíðu 3 | 603 Akureyri | Sími: 4648800 | Fax: 4648809 | glerarkirkja.is
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya