Fræðslukvöld

  Á vorönn 2012 stendur Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi í samstarfi við Glerárkirkju fyrir samræðukvöldum eins og undanfarin misseri. Tilgangurinn

Fræðslukvöld

  Á vorönn 2012 stendur Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi í samstarfi við Glerárkirkju fyrir samræðukvöldum eins og undanfarin misseri. Tilgangurinn með þeim er að skapa vettvang til samtals um kirkju og kristni og er öllum sem áhuga hafa velkomið að taka þátt í
samtalinu.

Fyrsta kvöldið er 8. febrúar og hefst samveran kl. 20:00. Í framhaldi af því kvöldi taka við sjö miðvikudagskvöld, sbr. dagskrá sem aðgengileg er hér á síðunni. Á þessum átta samræðukvöldum er ætlunin að ræða um andlegt líf og þýðingu þess fyrir trúað fólk, deila reynslu af vegferðinni og ræða saman um hana.

Kvöldin hefjast með helgistund og innleggi út frá Sæluboðun Meistarans í Fjallræðunni, nema fyrsta og síðasta kvöldið verða flutt erindi. Erindi fyrsta kvöldið fjallar um andlega vegferð trúaðs manns almennt og síðasta kvöldið er vegferðin í daglegu lífi skoðuð. Hin hefjast með útskýringu á
Biblíutexta. Eftir kaffihlé verður tekið viðtali við trúað fólk um vegferð þeirra út frá efni kvöldsins og í framhaldi af því verða almennar umræður.

Bæklingur með dagskrá (pdf-skjal).

Í Glerárkirkju er boðið upp á fræðslukvöld eitt kvöld í viku mánuðina október, nóvember, febrúar og mars. Hverju sinni er unnið með ákveðin þemu eða viðfangsefni og fyrirlesarar gjarnan fengnir víða að, en einnig sinna prestar kirkjunnar, djákni og héraðsprestur fræðslunni.

Ný námskeið eru auglýst hverju sinni á N4-skránni /  í Dagskránni, í fréttum á forsíðu þessa vefs og á vef prófastsdæmisins,www.kirkjan.is/naust.

Nánari upplýsingar um námskeiðahald í Glerárkirkju gefur djákni kirkjunnar í síma 464 8800.

Svæði

Glerárkirkja | Bugðusíðu 3 | 603 Akureyri | Sími: 4648800 | Fax: 4648809 | glerarkirkja.is
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya