Fermingarfræðslan í Glerárkirkju er á höndum presta Glerárkirkju. Fræðslan hefst jafnan á haustin nánar
tiltekið í september og lýkur um Páska. Fræðslan er að jafnaði ein kennslustund í viku hjá hverjum hópi og gert er ráð fyrir
að fermingarfræðslan sé að minnsta kosti 22 kennslustundir alls. Þá er farið í eina dagsferð á haustönn á Löngumýri
og Hóla auk þess sem fermingarbörn eru hvött til að taka þátt í æskulýðsstarfinu í kirkjunni. Fræðslan veturinn
2011-2012 fer fram sem hér segir:
Hópur A á þriðjudögum kl. 13:30
Hópur B á þriðjudögum kl. 14:30
Hópur C á þriðjudögum kl. 15:30
Hópur D á miðvikudögum kl. 13:30
Hópur E á miðvikudögum kl. 15:00
Hópur F á fimmtudögum kl. 16:45
Nánari upplýsingar um fræðsluna gefa prestarnir í síma 464 8800 á viðtalstímum milli 11:00 og 12:00, þriðjudaga til föstudaga.
En einnig má fræðast nánar um margt varðandi fræðsluna hér á vefnum:
Síðasti dagur til að breyta fermingardegi er öskudagur, 22. febrúar!
Reglan er sú að börnin eru skráð á
fermingardag með sínum bekk nema annað sé
tekið fram. Foreldrar þurfa sem sagt ekki
að hafa samband ef börnin eiga að fermast á þeim degi sem þeirra bekkur er skráður.
Þið sem
þurfið að breyta um fermingardag, vinsamlegast látið vita fyrir öskudag, 22. febrúar nk. Best er að koma breytingum til sr. Örnu, á
arna@glerarkirkja.is
Upplýsingar um fermingarfræðslu veturinn 2011 til 2012 er að finna hér.
Upplýsingar um ferð á Löngumýri í október 2011 er að finna hér.
Skráningarblað í fermingarfræðslu 2011 er aðgengilegt á vefnum: Word-skjal / OpenOffice skjal.
Upplýsingar um fermingar árið 2013 er að finna hér.
Upplýsingar um fermingar árið 2012 er að finna hér.
Upplýsingar um fermingar árið 2011 er að finna hér