Fræðslukvöld 17. október
- 6 stk.
- 19.10.2012
Myndir frá fræðslukvöldi í Glerárkirkju 17. október 2012. Þetta kvöld fjallaði sr. María Ágústsdóttir um biblíutúlkun.
Skoða myndirMyndir frá fræðslukvöldi í Glerárkirkju 17. október 2012. Þetta kvöld fjallaði sr. María Ágústsdóttir um biblíutúlkun.
Skoða myndirÞriðjudaginn 16. október 2012 fóru 27 börn með sr. Gunnlaugi, sr. Guðmundi og Pétri Björgvini djákna í fermingarfræðsluferð í Skagafjörð. Fyrst var stoppað á Hólum í Hjaltadal en svo dvalið dagpart á Löngumýri.
Skoða myndirNemendur úr Síðuskóla sem fermast í vor í Glerárkirkju tóku þátt í ferð í Skagafjörð fimmtudaginn 18. október 2012 með prestum og djákna kirkjunnar.
Skoða myndirÞriðja fimmtudagskvöldið í röð mættu um 50 krakkar á fund í unglingastarf KFUM og KFUK og Glerárkirkju. Að þessu sinni var listaþema í gangi. Hlutverkið sem hver hópur fékk var að búa til myndastyttu og þekja hana með hvítum salerniseyðublöðum.
Skoða myndirSunnudagskvöldið 2. desember (1. sd. í aðventu) árið 2012 var aðventukvöld í Glerárkirkju. Hér eru nokkrar myndir frá kvöldinu
Skoða myndirÍ tilefni af 20 ára vígsluhátið Glerárkirkju var dagskrá föstudagskvöldið 7. desember 2012 sem markaði upphaf afmælishátíðardagskrár. Þar var opnuð handverks- og ljósmyndasýning Díönu Bryndísar sem einnig er þekkt sem Mamma Dreki. Auk þess stóð kvenfélagið Baldursbrá fyrir kaffihúsi þar sem að Jokka, Linda og Reynir sáu um ljúfa tónlist. Alls mættu um 80 manns á dagskrána þetta kvöld sem stóð frá 20:00 til 23:00. Myndirnar tók Bjarni Eiríksson ljósmyndari á Akureyri.
Skoða myndirHópur biblíuskólanemenda heimsótti Glerárkirkju í upphafi ársins 2013 og sáu þau meðal annars um þemaviku fermingarbarna, stóðu fyrir lofgjörðarkvöldi, tóku þátt í guðsþjónustu safnaðarins og nutu þess að vera í snjónum á Akureyri. Hér eru nokkrar myndir frá heimsókninni.
Skoða myndirMánudaginn 15. október 2012 héldu sr. Gunnlaugur, sr. Arna Ýrr og Pétur Björgvin djákni í Skagafjörð með tæplega 40 fermingarbörn sem langflest eru í Giljaskóla.
Skoða myndirFjölmenni var í messu í Glerárkirkju sunnudaginn 16. september. Ungt fólk sem sótt hafði námskeiðið "Ungt fólk, trú og lýðræði" sömu helgi tók virkan þátt í messunni.
Skoða myndirFimmtudaginn 13. september 2012 stóð Biskupsstofa fyrir sunnudagaskólanámskeiði í Glerárkirkju. Hér eru birtar nokkrar myndir.
Skoða myndirKFUM og KFUK reka sumarbúðir við Hólavatn í Eyjafirði. Haustið 2012 var skáli sem tekinn hafði verið í notkun þá um sumarið vígður við hátíðlega athöfn á kaffisöludegi Hólavatns.
Skoða myndirLaugardaginn 2. júní 2012 stóð framtíðarnefnd Þjóðkirkjunnar fyrir málþingi í Glerárkirkju um framtíð kirkjunnar á landsbyggðinni. Myndirnar er einnig hægt að skoða á flickr.com
Skoða myndirStarfsfólk og sjálfboðaliðar sóttu skyndihjálparnámskeið Rauða Krossins í Glerárkirkju þriðjudaginn 9. október 2012.
Skoða myndirHerra Pétur Sigurgeirsson, biskup, tók fyrstu skóflustunguna fyrir byggingu Glerárkirkju 31. maí 1984. Fyrsti hluti Glerárkirkju var tekinn í notkun 15. febrúar 1987 en kirkjan vígð á öðrum sunnudegi í aðventu 1992. Á vef Glerárkirkju eru birtar nokkrar myndir frá byggingarárum Glerárkirkju. Þetta er 3. hluti. Ágrip af sögu kirkjunnar má nálgast hér á vef kirkjunnar.
Skoða myndirHerra Pétur Sigurgeirsson, biskup, tók fyrstu skóflustunguna fyrir byggingu Glerárkirkju 31. maí 1984. Fyrsti hluti Glerárkirkju var tekinn í notkun 15. febrúar 1987 en kirkjan vígð á öðrum sunnudegi í aðventu 1992. Á vef Glerárkirkju eru birtar nokkrar myndir frá byggingarárum Glerárkirkju. Þetta er 2. hluti. Ágrip af sögu kirkjunnar má nálgast hér á vef kirkjunnar.
Skoða myndirHerra Pétur Sigurgeirsson, biskup, tók fyrstu skóflustunguna fyrir byggingu Glerárkirkju 31. maí 1984. Fyrsti hluti Glerárkirkju var tekinn í notkun 15. febrúar 1987 en kirkjan vígð á öðrum sunnudegi í aðventu 1992. Hér eru birtar nokkrar myndir frá byggingarárum Glerárkirkju. Ágrip af sögu kirkjunnar má nálgast hér á vef kirkjunnar.
Skoða myndirÁ árabilinu 2006 til 2011 tóku alls 13 ungmenni erlendis frá þátt í verkefni æskulýðsstarfs Glerárkirkju sem bar heitið ,,Together in Snow and Sun". Verkefnið fékk styrk frá Evrópu Unga Fólksins innan ramma evrópskrar sjálfboðaliðaþjónustu. Ungmennin dvöldu mislengi á Akureyri, sum aðeins 6 mánuði, önnur allt að 13 mánuði. Í febrúar 2012 stóð æskulýðsstarf Glerárkirkju svo fyrir matsfundi þar sem öllum fyrrverandi sjálfboðaliðunum var boðið að koma til landsins og funda í nokkra daga á Akureyri og Vestmannsvatni ásamt fulltrúum eigin samtaka. Markmiðið var að skoða sjálfboðaliðaverkefnið í heild sinni. Myndirnar hér á eftir gefa innlit í verkefnið.
Skoða myndir12. febrúar var Kór Glerárkirkju við æfingar í safnaðarsal Glerárkirkju. Þessar myndir voru teknar við það tækifæri.
Skoða myndirÞemaviku fermingarbarna lauk með heimsókn frá hljómsveitinni Tilviljun? í Glerárkirkju, sunnudaginn 5. febrúar 2012. Hljómsveitin sá um tónlistina í fjölskylduguðsþjónustu kl. 11:00 ásamt Barnakór Glerárkirkju og Æskulýðskór Glerárkirkju, en kórunum stjórnar Marína Ósk. Um kvöldið var svo guðsþjónustu kl. 20:00 þar sem nokkur fermingarbörn tóku lagið með hljómsveitinni. Við þökkum Tilviljun? kærlega fyrir komuna og öllum fyrir þátttökuna. Fleiri myndir má skoða á: flickr.com
Skoða myndir