Myndasafn
Upplýsingar um safnaðarstarfið í Glerárkirkju
Myndasafn
-
12. febrúar var Kór Glerárkirkju við æfingar í safnaðarsal Glerárkirkju. Þessar myndir voru teknar við það tækifæri.
-
Þemaviku fermingarbarna lauk með heimsókn frá hljómsveitinni Tilviljun? í Glerárkirkju, sunnudaginn 5. febrúar 2012. Hljómsveitin sá um tónlistina í fjölskylduguðsþjónustu kl. 11:00 ásamt Barnakór Glerárkirkju og Æskulýðskór Glerárkirkju, en kórunum stjórnar Marína Ósk. Um kvöldið var svo guðsþjónustu kl. 20:00 þar sem nokkur fermingarbörn tóku lagið með hljómsveitinni. Við þökkum Tilviljun? kærlega fyrir komuna og öllum fyrir þátttökuna. Fleiri myndir má skoða á:
flickr.com
-
Rúmlega 1000 manns hafa horft á leikþáttinn um Pésa sem vill gerast jólasveinn núna á aðventunni. Meðal annars var leikþátturinn sýndur í fjölskylduguðsþjónustunni 18. desember sl. Hér má finna nokkrar myndir af samtali Pésa og sr. Örnu, en leikþátturinn snýst um það að Pési er sannfærður um að hann ætli að verða jólasveinn þegar hann verður stór, Til þess þarf hann að læra ýmislegt. Að loknu samtali við prestinn hefur hann aldeilis fréttir að færa og hleypur til Palla, besta vinar síns með fréttirnar.
-
Marimbasveitin Mandisa heimsótti okkur í Glerárkirkju 18. desember og tók þátt í fjölskylduguðsþjónustu, öllum til mikillar ánægju. Rúnar Þór frá Myndrún var á staðnum og tók nokkrar myndir. Stjórnandi sveitarinnar er Ásta Magnúsdóttir, tónmenntakennari í Giljaskóla.
-
Fjórða sunnudag í aðventu 2011 var fjölskylduguðsþjónusta í Glerárkirkju. Hér á vefnum má finna nokkrar myndir úr þeirri athöfn, bæði í þessari möppu, en einnig í öðrum myndamöppum þar sem hægt er að skoða leikþáttinn um hann Pésa, myndir af fiðleik Suzukinemenda frá Tónlistarskólanum á Akureyri og myndir af marimbaleik nemenda úr Giljaskóla.
-
Suzukinemendur úr Tónlistarskólanum á Akureyri léku hreint yndislega á fiðlurnar sínar í fjölskylduguðsþjónustu á fjórða sunnudegi í aðventu í Glerárkirkju. Takk kæru krakkar, foreldrar og kennarar. Rúnar Þór frá Myndrún var á staðnum og tók nokkrar myndir.
-
Í lok fjölskylduguðsþjónustunnar þann 18. desember sem var fjórði sunnudagur í aðventu, var kirkjugestum boðið að ganga í kringum jólatréð. Þar var Askasleikir mættur og lék við hvern sinn fingur með dyggri aðstoð frá Hermanni R. Jónssyni og Risto Laur.
Myndir: Myndrún
-
Jólakortasýning á aðventu 2011.
-
Líf og fjör í bland við ábyrgð og alvöru einkenndu helgina 18. til 20. nóvember 2011 á Vestmannsvatni. Þar fór fram farskóli leiðtogaefna. Rúmlega 20 ungmenni af starfsvæði ÆSKA og ÆSKEY sóttu námskeiðið.
-
Þessar vikurnar stendur Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi fyrir samræðukvöldum um trúna á Krist, guðspjöllin og nútímann. Til grundvallar umræðunni liggur bók Joseph Ratzinger „Jesús frá Nasaret“. Þetta miðvikudagskvöld fór sjöunda umræðukvöldið fram.
-
Landsmót æskulýðsfélaga 2011 var haldið á Selfossi síðustu helgina í október. Meðal 500 þátttakenda var 15 manna hópur úr Glerárkirkju.
-
Guð elskar glaðan gjafara var yfirskrift helgarsamveru sem ÆSKEY og KFUM og KFUK á Norðurlandi stóðu fyrir í sameiningu dagana 5. og 6. nóvember síðastliðinn. Mótstjórar voru Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni í Glerárkirkju og Jóhann H. Þorsteinsson, sviðsstjóri æskulýðsstarfs KFUM og KFUK. Um 60 börn sóttu mótið auk fullorðinna.
-
Myndir frá starfi MeM, æskulýðsfélagsins í Glerárkirkju.
MeM stendur fyrir Mannréttindi eru Mikilvæg.
-
Samvera eldri borgara í Glerárkirkju fimmtudaginn 22. september 2011 hófst að vanda klukkan þrjú. Góðir gestir komu í kirkjuna, ljóðskáld úr ljóðahópi Gjábakka sem fluttu frumsamin ljóð. Hér er að finna nokkrar myndir frá samverunni.
-
Myndir í eigu Minjasafnsins á Akureyri. Voru notaðar við biblíusögukennslu í skólum Akureyrar. Þær eru allar merktar höfundinum Elsie Anna Wood.
-
Átta myndir í eigum Minjasafnsins á Akureyri.
Voru notaðar við biblíusögukennslu í skólum Akureyrar.
Þær eru allar merktar höfundinum Poul Steffensen sem fæddist í Bjerringbro 1866 í Danmörku og lést árið 1923 í Aarhus.
Hér stuttur texti á dönsku um höfundinn:
Poul Steffensen (1866-1923) maler og tegner. Efter uddannelse som malersvend kom han på Kunstakademiet i København, hvor han studerede hos Fr. Vermehren, Jul. Exner og Carl Bloch (1887-90). I begyndelsen af 1900-tallet brød han igennem med illustrationerne til Carit Etlars og B.S. Ingemanns historiske romaner samt Børnenes Bibel. Stilistisk og koloristisk knytter Poul Steffensen sig til traditionen på Akademiet i slutningen af 1800-tallet. Poul Steffensen har malet altertavler til Sions kirke i København (1896), Brorsons kirke i København (1902), Svostrup kirke (1905), Bjerringbro kirke, Dover kirke, Rye kirke, Vejerslev kirke, Lemming kirke (1905) Kapernaumskirken i København, Ferring kirke (1912) og Billum kirke.
-
Leikskólinn Krógaból er 25 ára. Af því tilefni var dagurinn haldinn hátíðlegur þann 27. maí. Við í Glerárkirkju óskum öllum á Krógabóli til hamingju með daginn - og tókum nokkrar myndir í tilefni dagsins.
-
Vorið 2011 var vorhátíð Glerárkirkju haldin hátíðleg sunnudaginn 8. maí - þrátt fyrir að veðrið væri ekki endilega mjög vorlegt.
Hér á síðunni eru birtar nokkrar myndir sem Samuel Örn Pétursson tók.
-
Fjöldi fólks hefur gaman af því að taka myndir af kirkjum. Öðru hvoru senda einstaklingar okkur í Glerárkirkju myndir sem þau hafa tekið af kirkjunni. Allar slíkar sendingar eru kærkomnar og þökkum við kærlega fyrir. Hér birtum við nokkrar slíkar myndir.
Átt þú mynd af Glerárkirkju - gamla eða nýja - sem þú vilt deila með okkur? Endilega sendu hana á glerarkirkja@glerarkirkja.is eða komdu myndinni til okkar eftir öðrum leiðum!
-
Árið 2005 fékk Glerárkirkja í fyrsta sinn leyfi til að starfa innan ungmennaáætlunar Evrópusambandsins sem nú ber íslenska heitið ,,Evrópa Unga Fólksins". Upp frá því hefur kirkjan starfað sem viðurkennd móttökusamtök, umsýslusamtök (co-ordinator) og síðar einnig sem sendisamtök. Fjöldi ungs fólks hefur tekið þátt í verkefnum Glerárkirkju sem sjálfboðaliðar í æskulýðsstarfi kirkjunnar, en einnig var kirkjan í samstarfi við leikskólana Krógaból, Síðusel og Sunnuból um verkefni fyrir sjálfboðaliðana fram til ársins 2011.
Hér á veggnum gefur að líta myndir af öllum sjálfboðaliðunum, ásamt upplýsingum um nöfn þeirra og það tímabil sem hvert og eitt þessara ungmenna lagði fram sjálfboðna vinnu í þágu samfélagsins í sókninni.
Fargjöld og tryggingar sjálfboðaliða eru greidd af fullu af ESB, auk þess sem kirkjan hefur fengið styrk úr ungmennaáætluninni til þess að greiða fæði, húsnæði og vasapening til sjálfboðaliðanna.
-
Hefð er fyrir því í Glerárkirkju að teknar séu myndir af fermingarbörnunum til birtingar í safnaðarblaðinu sem kemur út fyrir páska. Í þriðju viku í mars 2011 var komið að þessu verkefni og stilltu krakkarnir sér upp í kirkjunni og prestarnir smelltu af. Hér má skoða myndirnar í heild sinni.
-
Þemavika fermingarbarna stóð yfir í Glerárkirkju í síðustu viku og lauk á æskulýðsdeginum 6. mars 2011 - Maike og Klaudia, sem eru í Glerárkirkju sem sjálfboðaliðar í vetur á vegum Evrópu Unga Fólksins, tóku myndir af því helst á þemavikunni og skelltu líka nokkrum myndum upp frá fermingarstörfunum í vetur. Hér er árangurinn í smækkaðri útgáfu.
-
TTT klúbburinn úr Glerárkirkju hitti fjölda annarra krakka á febrúarmóti ÆSKEY og KFUM og KFUK á Hrafnagili 18. til 19. febrúar 2011.
-
Um 100 unglingar á aldrinum 13 til 16 ára og leiðtogar af Norður- og Austurlandi tóku þátt í æskulýðsmóti sem haldið var í Brúarásskóla á Fljótsdalshéraði. Meðal þátttakenda voru unglingar úr Glerbroti, æskulýðsfélagi Glerárkirkju. Þema mótsins var “Með sama hugarfari og Kristur” og vísar til þess að við erum öll ólík, en eitt.
-
-
Upphaf samkirkjulegrar bænaviku 2011 var í útvarpsguðsþjónustu frá Glerárkirkju. Myndirnar voru teknar við það tækifæri
-
Á hverju ári stendur Glerárkirkja fyrir veglegri vorhátíð barnastarfs kirkjunnar. Þessar myndir voru teknar við það tækifæri vorið 2010
-
Ungmenni frá Glerárkirkju tóku þátt í ungmennaskiptaverkefni ásamt ungu fólki frá æskulýðsstarfi kirkjunnar í prófastsdæminu Reutlingen í Þýskalandi (Evangelisches Bezirksjugendwerk, Reutlingen). Fyrri hluti verkefnisins fór fram í Þýskalandi um páska, sá seinni á Íslandi um mánaðarmótin maí/júní.
-
Félagar úr Æskulýðsfélaginu Glerbroti tóku þátt í Hæfileikakeppni NorðAusturlands sem fram fór í Akureyrarkirkju á vegum Æskulýðssambands kirkjunnar í Eyjafjarðarprófastsdæmi 30. janúar 2010. Þetta var fjórða árið sem ÆSKEY stóð fyrir þessari hæfileikakeppni sem í daglegu tali heitir HÆNA.
-
Myndir frá vorhátíð barna- og unglingastarfs Glerárkirkju vorið 2009
-
...