Forsíða

Upplýsingar um safnaðarstarfið í Glerárkirkju

Fréttir

Kynning á barnabókasetri á foreldramorgni 9. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar kemur góður gestur í heimsókn á foreldramorgunn. Nanna Lind frá Amtsbókasafninu á Akureyri mun kynna í máli og myndum, nýstofnað Barnabókasetur sem staðsett er á Amtsbókasafninu. 


Umræðukvöldin hefjast í kvöld

Í kvöld, miðvikudagskvöldið 8. febrúar hefjast umræðukvöldin sem verða í Glerárkirkju í alls átta miðvikudagskvöld í febrúar og mars. Því miður er Kristinn Ólason forfallaður, en sr. Gunnlaugur Garðarsson mun vera með opnunarerindi og sagt verður frá fyrirhugaðri dagskrá framundan.

Sjá nánar hér á vefnum.


Fundir með foreldrum fermingarbarna 12. og 19. febrúar


Foreldrar barna sem fermast í Glerárkirkju vorið 2012 eru boðaðir til foreldrafunda 12. og 19. febrúar eins og fram kemur í bréfi frá prestum sem send eru heim með börnunum að loknum fræðslustundum þessa vikuna. Bréfið er einnig aðgengilegt hér á heimasíðu kirkjunnar.
Lesa meira

Tilviljun? í heimsókn - myndir


Þemaviku fermingarbarna lauk með heimsókn frá hljómsveitinni Tilviljun? í Glerárkirkju, sunnudaginn 5. febrúar 2012. Hljómsveitin sá um tónlistina í fjölskylduguðsþjónustu kl. 11:00 ásamt Barnakór Glerárkirkju og Æskulýðskór Glerárkirkju, en kórunum stjórnar Marína Ósk. Um kvöldið var svo guðsþjónustu kl. 20:00 þar sem nokkur fermingarbörn tóku lagið með hljómsveitinni. Við þökkum Tilviljun? kærlega fyrir komuna og öllum fyrir þátttökuna. Hér á vef kirkjunnar eru nokkrar myndir frá deginum. Fleiri myndir má skoða á: flickr.com

Sunnudagurinn 5. febrúar


Fjölskylduguðsþjónusta og barnastarf kl. 11:00 Hljómsveitin Tilviljun? sér um tónlist og söng ásamt Barnakór Glerárkirkju og Æskulýðskór Glerárkirkju, en kórarnir koma fram undir stjórn Marínu Óskar Þórólfsdóttur.

Kvöldguðsþjónusta klukkan 20:00. Fermingarbörn taka virkan þátt. Hljómsveitin Tilviljun? sér um tónlistina ásamt fermingarbörnum.


Fermingardagar árið 2012

Foreldrar fermingarbarna er vinsamlegast beðnir að senda inn endanlega dagsetningu á fermingardegi. Reglan er sú að börnin eru skráð á fermingardag með sínum bekk nema annað sé tekið fram. Foreldrar þurfa sem sagt ekki að hafa samband ef börnin eiga að fermast á þeim degi sem þeirra bekkur er skráður. 
Þið sem þurfið að breyta um fermingardag, vinsamlegast látið vita fyrir öskudag, 22. febrúar nk. Best er að koma breytingum til sr. Örnu, á arna@glerarkirkja.is




Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Orð dagsins

Sjá, ég er með þér og varðveiti þig hvert sem þú fer. 1. Mós. 28:15 18.09.2010

Útfarir

Engin útför skráð.

Um útfarir.

Póstlisti

Svæði

Glerárkirkja | Bugðusíðu 3 | 603 Akureyri | Sími: 4648800 | Fax: 4648809 | glerarkirkja.is
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya